title
cuddle
English
Íslenska
introduction
infantmassage
themassagebodysuit
sources
guestbook
guestbook
news
pictures
sponsors

Þriðjudagurinn, 23. nóvember 2010

Facebook aðventuleikur Nuddgallans!

Í tilefni aðventunnar ætlum við að gefa einum heppnum Facebook aðdáenda nuddgalla að eigin vali á hverjum sunnudegi fram að jólum! Það eina sem þú þarft að gera er að gerast aðdándi nuddgallans á Facebook, bjóða öllum vinum þínum, og kvitta svo á vegginn. Einn heppinn einstaklingur verður dreginn út næstu fjóra sunnudaga.

Facebook-síðu nuddgallans má finna hér: http://www.facebook.com/pages/Nuddgallinn/61300932227

- Una Guðlaug Sveinsdóttir

- posted 13:29


Föstudagurinn, 8. janúar 2010

Gleðilegt ár!

Nú erum við komnar með fullan lager á ný, og höfum bætt við okkur einni stærð fyrir nýfædd börn. Nú erum við því með fjórar stærðir:

56 cm - nýfædd
62 cm - 0-3 mánaða
68 cm - 3-6 mánaða
74 cm - 6-9 mánaða

Eins og áður erum við með tígrisdýr og apa. Athugið að við erum bara með tígrisdýramynd í stærð 56.

Við höfum einnig bætt við nýjum pöntunarmöguleikum. Nú er í boði að sækja gallann til okkar, á Akureyri eða í Reykjavík, og spara sér þar með sendingarkostnaðinn. Nánari upplýsingar eru á pöntunarsíðunni.

- Una Guðlaug Sveinsdóttir

- posted 19:59


Þriðjudagurinn, 10. nóvember 2009

Nú eru stærðir 62 og 68 því miður uppseldar hjá okkur. Við áttum von á nýrri sendingu af samfellum í lok sumars, en því miður hefur henni seinkað. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og munum gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að hafa fullan lager sem fyrst.

Við eigum ennþá nóg af stærð 74, sem er ætluð 6-9 mánaða gömlum börnum.

- Una Guðlaug Sveinsdóttir

- posted 00:45


Þriðjudagurinn, 11. ágúst 2009

Nú er handverkshátíðinni lokið og var hún í alla staði vel heppnuð. Við erum mjög sáttar með helgina, enda fengum við sem endranær mjög jákvæð viðbrögð. Í dag fórum við strax á fullt með að undirbúa okkur fyrir veturinn, þar sem við þurfum fljótlega að panta fleiri samfellur og bæklinga.

Við viljum vekja athygli á þessu:

- Stærð 62 er uppseld eins og er.
- Nuddgallann má panta hér á vefsíðunni, en hann fæst einnig í Adams í Smáralind og er núna nýlega kominn í verslunina Sirku á Akureyri.
- Nú er hægt að millifæra beint á okkur fyrir nuddgallanum, og spara sér þar með póstkröfukostnaðinn. Nánari upplýsingar eru á pöntunarsíðunni.

- Una Guðlaug Sveinsdóttir

- posted 18:17


Þriðjudagurinn, 4. ágúst 2009

Nú er það helst að frétta að við stöllur verðum með bás á Handverkshátíðinni í Hrafnagili, sem fer fram 7.-10. ágúst næstkomandi. Fyrir tveimur árum vorum við með bás þar, og gekk það mjög vel. Við erum þessa dagana á fullu að undirbúa okkur, og útbúa allt sem til þarf.

Hátíðin verður opin klukkan 12-19 alla dagana, og hægt er að nálgast frekari upplýsingar um hana á vefslóðinni: www.handverkshátid.is.

Sjáumst sem flest í Hrafnagili næstu helgi!

- Una Guðlaug Sveinsdóttir

- posted 20:49



Eldri fréttir -->