Sunnudagurinn, 16. september 2007
Upp á síðkastið hefur verið heldur rólegt hjá okkur, enda haustið komið og með því skólinn. Bráðlega förum við í það að hengja upp auglýsingar og reyna að minna á okkur.
Við náðum að fara yfir allan lagerinn í lok sumars. Hér má sjá hvað er til í hverri stærð:
Stærð 50: öll dýr
Stærð 60: ljón, tígrisdýr, fílar og gíraffar
Stærð 70: apar og gíraffar
Stærð 80: fílar og gíraffar
Stærð 90: apar, ljón, tígrisdýr og fílar
Þeir sem panta á netinu eru vinsamlegast beðnir um að hafa þetta til hliðsjónar.
Að lokum vil ég vekja athygli á því að það eru komnar inn nokkrar myndir frá Handverkshátíðinni í Hrafnagili.
- Una Guðlaug Sveinsdóttir
- posted 16:57
Mánudagurinn, 13. ágúst 2007
Nú er handverkshátíðin yfirstaðin og gekk alveg ljómandi vel. Það voru þónokkrir sem hrósuðu básnum okkar, en þar réð einfaldleikinn ríkjum og mesta prýðin voru að sjálfsögðu gallarnir okkar fallegu. Allir sem komu við hjá okkur voru mjög jákvæðir og margir keyptu galla. Það var gaman að sjá hversu margir mundu ennþá eftir okkur síðan við tókum þátt í Ungum Vísindamönnum. Vissulega hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan þá!
Núna á næstunni þurfum við að fara yfir allan lagerinn, því það virðist sem einhverjar týpur séu hreinlega orðnar uppseldar í vissum stærðum. Svo stefnum við á að fara af stað með heilmikið kynningarátak í haust, auk þess sem fleiri spennandi hlutir eru á döfinni sem greint verður frá þegar þar að kemur.
- Una Guðlaug Sveinsdóttir
- posted 10:51
Þriðjudagurinn, 31. júlí 2007
Það er helst að frétta af okkur stöllum að við verðum með bás á Handverkshátíðinni í Hrafnagili 10.-12. ágúst. Fjöldi fólks sækir hátíðina og verður þetta því mjög góð kynning fyrir okkur. Grunnhugmyndin að básnum er komin á blað, en Lilý sér að mestu leyti um hann, ásamt frænku sinni. Meiri upplýsingar um hátíðina má finna á http://www.handverkshatid.is.
-
- posted 17:01
Miðvikudagurinn, 25. apríl 2007
Jæja, þá er fréttasíðan loksins komin í gagnið og munum við birta hér fréttir af því sem er að gerast hjá fyrirtækinu. Ekki hefur mikið fréttnæmt gerst nýlega, það kom reyndar umfjöllun um nuddgallann í sérblaði sem fylgdi Blaðinu 5. apríl. Einnig fylgdist Una með landskeppni Ungra Vísindamanna 2007 og urðu þar hlutskarpastir tveir drengir sem kepptu á móti okkur 2005. Þeir höfðu unnið áfram í verkefninu sínu og fara nú í Evrópukeppnina, sem haldin er í Valencia á Spáni í haust. Gaman af því!
- Una Guðlaug Sveinsdóttir
- posted 10:54