title
cuddle
English
Íslenska
introduction
infantmassage
themassagebodysuit
sources
guestbook
guestbook
news
pictures
sponsors

Velkomin á heimasíðu LUV ehf. Þetta fyrirtæki var stofnað þann 15. ágúst 2006, og eru eigendur þess Lilý Erla Adamsdóttir, Una Guðlaug Sveinsdóttir og Valdís Ösp Jónsdóttir. Árið 2005 tókum við þátt í keppni sem heitir Ungir Vísindamenn. Þá hönnuðum við samfellu með merkingum sem sýna strokur sem notaðar eru í ungbarnanuddi. Tilgangurinn með samfellunni er bæði að minna foreldra á að nýta sér ungbarnanudd og að kenna þeim strokurnar. Á síðunni má finna fræðslu um ungbarnanudd og kosti þess, umfjöllun um þátttöku okkar í vísindakeppninni, upplýsingar um nuddgallann, fréttir og myndir. Ef þörf er á nánari upplýsingum má senda okkur póst á netfangið luv.ehf@gmail.com.

Gallinn fæst í versluninni Adams í Smáralind og versluninni Sirku á Skipagötu 5, Akureyri. Einnig er hægt að panta hann hér á síðunni og fá hann sendan í póstkröfu.

Hægt er að fá gallann í fimm mismunandi útgáfum. Myndir af þeim eru á síðunni "Nuddgallinn". Allar samfellurnar eru stutterma.

ATH: Samfellurnar má ekki þvo á meira en 30°C, og þær má ekki setja í þurrkara!